West Ham vann í Króatíu

Declan Rice fagnar marki sínu í Zagreb í kvöld.
Declan Rice fagnar marki sínu í Zagreb í kvöld. AFP

Michail Antonio og Declan Rice skoruðu mörk West Ham þegar liðið vann 2:0-sigur gegn Dinamo Zagreb í H-riðli Evrópudeildarinnar í í Króatíu í kvöld.

Antonio kom West Ham yfir á 22. mínútu og Rice tvöfaldaði forystu Lundúnarliðsins í upphafi síðari hálfleiks.

Í hinum leik riðilsins vann Genk 1:0-sigur gegn Rapid Vín í Austurríki og Genk og West Ham eru því bæði með 3 stig í efstu sætum riðilsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert