Guðlaugur Victor rekinn af velli

Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson. AFP

Guðlaugur Victor Pálsson, fyrirliði Schalke, fékk að sjá rauða spjaldið í þýsku knattspyrnunni í dag. 

Schalke mætti Karlsruhe á heimavelli í 2. deildinni og tapaði 1:2. Guðlaugur Victor fékk brottvísun á 72. mínútu fyrir brot en það var staðan 1:1. 

Schalke er í 8. sæti með 10 stig og er með 50% árangur til þessa. Þrjá sigra, þrjú töp og eitt jafntefli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert