Bayern skoraði sjö

Leikmenn Bayern fagna einu marka sinna í dag.
Leikmenn Bayern fagna einu marka sinna í dag. AFP

Þýskalandsmeistarar Bayern München voru í stuði er liðið mætti Bochum á heimavelli í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag. Lokatölur urðu 7:0, Bayern í vil.

Leroy Sané, Joshua Kimmich og Serge Gnabry skoruðu allir fyrir Bayern á fyrsta rúma hálftímanum og Vasilis Lampropoulos skoraði sjálfsmark á 43. mínútu og var staðan í hálfleik 4:0.

Robert Lewandowski bætti við fimmta markinu, áðurnefndur Kimmich því sjötta og varamaðurinn Eric Choupo-Moting því sjöunda á 79. mínútu og þar við sat.

Bayern er á toppnum með þrettán stig eftir fimm leiki. Wolfsburg getur náð toppsætinu, takist liðinu að vinna Frankfurt á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert