Meistararnir skoruðu sex

Edin Dzeko skoraði tvö fyrir Roma.
Edin Dzeko skoraði tvö fyrir Roma. AFP

Inter Mílanó átti ekki í miklum vandræðum með að vinna Bologna er liðin mættust í A-deild ítalska fótboltans á Giuseppe Meazza-vellinum í Mílanóborg í kvöld. Lokatölur urðu 6:1.

Lautaro Martínez, Milan Skriniar, Nicoló Barella og Matías Vecino skoruðu allir fyrir Inter, áður en Eden Dzeko bætti við tveimur mörkum um miðbik seinni hálfleiks. Arthur Theate lagaði stöðuna fyrir Bologna undir lokin.

Inter er með tíu stig í toppsæti deildarinnar en Napólí, AC Milan og Roma eru öll með níu stig og með leik til góða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert