Bale frá næstu mánuðina

Gareth Bale verður frá næstu mánuðina vegna meiðsla.
Gareth Bale verður frá næstu mánuðina vegna meiðsla. AFP

Knattspyrnumaðurinn Gareth Bale missir af næstu leikjum spænska stórliðsins Real Madríd eftir að hafa meiðst á æfingu en illa virðist ætla ganga hjá Walesverjanum að koma ferlinum aftur af stað í spænsku höfuðborginni.

Bale fór til Tottenham að láni á síðustu leiktíð og spilaði í ensku úrvalsdeildinni en er nú snúinn aftur til Real þar sem Carlo Ancelotti er orðinn þjálfari. Bale meiddist á fæti á æfingu um helgina og stefnir nú í að hann verði frá næstu átta vikurnar hið minnsta. Missir hann því meðal annars af stórleik Real Madríd og Barcelona í næsta mánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert