Messi úr leik vegna meiðsla

Lionel Messi virtist vonsvikinn þegar landi hans Mauricio Pochettino tók …
Lionel Messi virtist vonsvikinn þegar landi hans Mauricio Pochettino tók hann af velli í leiknum við Lyon. AFP

Lionel Messi getur ekki leikið með París SG í kvöld þegar liðið mætir Metz í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Messi var tekinn af velli á sunnudaginn þegar PSG vann Lyon og knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino upplýsti að það hefði verið vegna meiðsla en Messi virtist á þeirri stundu ósáttur við að vera skipt út af.

Messi fór í myndatöku í gær og í ljós komu áverkar á hné. Hann spilar ekki í kvöld og fer í nánari rannsókn á morgun. 

PSG á framundan sannkallaðan stórleik gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu næsta þrðjudag en liðið hefur unnið sex fyrstu leiki sína í 1. deildinni. Messi hefur aðeins  tekið þátt í tveimur þeirra en hann kom til félagsins frá Barcelona í ágústmánuði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert