Þrenna í stórsigri Bandaríkjanna

Alex Morgan átti stórleik fyrir Bandaríkin í nótt.
Alex Morgan átti stórleik fyrir Bandaríkin í nótt. AFP

Alex Morgan skoraði þrennu fyrir bandaríska kvennalandsliðið í knattspyrnu þegar liðið vann stórsigur gegn Paragvæ í vináttulandsleik í Cincinnati í Ohio í Bandaríkjunum í nótt.

Leiknum lauk með 8:0-sigri Bandaríkjanna en bandaríska lipið var 5:0-yfir í hálfleik.

Rosemary Lavelle, Sophia Smith, Catarina Macário og Morgan skoruðu mörk Bandaríkjanna í fyrri hálfleik en Morgan skoraði tvívegis, á 8. og 14. mínútu.

Morgan skoraði svo sjötta mark leiksins í upphafi síðari hálfleiks áður en Carli Lloyd og Macário bættu við sitt hvoru markinu.

Næsti leikur bandaríska liðsins er vináttulandsleikur gegn Suður-Kóreu, 22. október, en leikurinn fer fram í Kansas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert