Real tapaði stigum í toppbaráttunni

Real Madrid þurfti að sætta sig við jafntefli við Villarreal.
Real Madrid þurfti að sætta sig við jafntefli við Villarreal. AFP

Real Madrid tapaði stigum í toppbaráttunni í spænsku 1. deildinni í fótbolta er liðið þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli við Villarreal í kvöld.

Þrátt fyrir jafnteflið er Real enn á toppi deildarinnar með 17 stig, þremur stigum meira en Sevilla sem á leik til góða.

Erkifjendur Real í Barcelona hafa ekki farið vel af stað og er liðið í áttunda sæti með níu stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert