Jón Dagur hetjan í Íslendingaslag

Jón Dagur Þorsteinsson skoraði sigurmark AGF.
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði sigurmark AGF. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jón Dagur Þorsteinsson reyndist hetja AGF þegar liðið tók á móti SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á heimavelli í kvöld.

Leiknum lauk með 1:0-sigri AGF en Jón Dagur skoraði sigurmark leiksins á 35. mínútu.

Mikael Anderson var í byrjunarliði AGF en fór af velli á 65. mínútu. Þá kom Kristófer Ingi Kristinsson inn á sem varamaður hjá SønderjyskE á 73. mínútu.

AGF fer með sigrinum upp í sjöunda sæti deildarinnar í 12 stig en SønderjyskE er í verri málum í ellefta og næstneðsta sætinu með 8 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert