Lengri fjarvera hjá Zlatan

Zlatan Ibrahimovic fagnar marki í eina leiknum sem hann hefur …
Zlatan Ibrahimovic fagnar marki í eina leiknum sem hann hefur spilað með AC Milan í ítölsku A-deildinni í haust. AFP

Sænski knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibrahimovic missir af öðrum leik AC Milan í Meistaradeild Evrópu annað kvöld en hann hefur ekki náð sér af meiðslum í hásin.

Zlatan var ekki með ítalska liðinu þegar það tapaði 3:2 fyrir Liverpool í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar á dögunum og verður ekki með gegn Atlético Madrid annað kvöld.

Zlatan, sem verður fertugur í október, sagði við La Gazetta dello Sport á Ítalíu að hann yrði að fara vel með sig og hlusta á líkamann. „Ég vil spila alla leiki en verð að hugsa vel um mig og taka einn dag í einu. Ég er enginn stálmaður,“ sagði Zlatan sem hefur aðeins náð að spila einn af fyrstu sex leikjum AC Milan í ítölsku A-deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert