Messi mætti í morgun

Neymar, Lionel Messi og Kylian Mbappé á æfingu PSG í …
Neymar, Lionel Messi og Kylian Mbappé á æfingu PSG í morgun. AFP

Útlit er fyrir að Lionel Messi verði klár í slaginn annað kvöld þegar París SG tekur á móti Manchester City í sannkölluðum stórleik í Meistaradeild Evrópu í fótbolta.

Messi hefur misst af tveimur síðustu leikjum PSG í frönsku 1. deildinni eftir að hafa fengið högg á hné í leik gegn Lyon fyrr í þessum mánuði. Argentínumaðurinn snjalli var hins vegar mættur á æfingu Parísarliðsins í morgun til að taka þátt í lokaundirbúningi fyrir leikinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert