Fyrsta konan sem þjálfar í efstu deild Færeyja

Helen Lorraine Nkwocha.
Helen Lorraine Nkwocha. Ljósmynd/@ArgeTrondur

Helen Lorraine Nkwocha hefur verið ráðin þjálfari karlaliðs TB í færeysku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. 

Hún er fyrsta konan sem þjálfar karlalið í efstu deild þar í landi en liðið er í neðsta sæti úrvalsdeildarinnar með einungis þrjú stig eftir 22 umferðir.

TB er tíu stigum frá umspilssæti þegar fimm umferðir eru eftir af tímabilinu en hún þjálfaði áður í unglingaakademíu félagsins áður en hún tók við karlaliðinu.

Nkwocha stýrði sínum fyrsta leik með liðið á dögunum þegar það tapaði 1:6 gegn HB á heimavelli en staðan var 1:2 í hálfleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert