Kom inn á og lagði upp mark

Kristian Nökkvi Hlynsson í leik með U21-árs landsliði Íslands í …
Kristian Nökkvi Hlynsson í leik með U21-árs landsliði Íslands í síðasta mánuði. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hinn ungi og bráðefnilegi Kristian Hlynsson kom inn á sem varamaður og lagði upp þriðja og síðasta mark varaliðs Ajax í 3:1 sigri gegn varaliði Utrecht í hollensku B-deildinni í knattspyrnu karla í kvöld.

Kristian, sem er aðeins 17 ára gamall, kom inn á í stöðunni 1:1 á 63. mínútu.

Á 77. mínútu kom Naci Ünüvar Ajax í 2:1 með öðru marki sínu í leiknum.

Kristian lagði svo upp þriðja markið fyrir Terrence Douglas á 88. mínútu og þar við sat.

Hann hefur nú tekið þátt í átta af tíu leikjum Ajax í B-deildinni var þetta önnur stoðsending Kristians í deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert