Belenenses getur aðeins teflt fram níu leikmönnum er liðið mætir topplið i Benfica í portúgölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Kórónuveiran hefur leikið leikmannahóp Belenenses grátt og því stór hluti hópsins fjarverandi. Leiknum var hinsvegar ekki frestað og því aðeins níu leikmenn á skýrslu liðsins í dag og þar af tveir markverðir.
Markvörðurinn Álvaro Ramalho byrjaði á miðjunni hjá Belenenses vegna ástandsins. Þegar fréttin er skrifuð er staðan 6:0, Benfica í vil, og rúmar 37 mínútur búnar.