Náðu sjö stiga forystu

Karim Benzema fagnar sigurmarkinu gegn Athletic Bilbao í kvöld.
Karim Benzema fagnar sigurmarkinu gegn Athletic Bilbao í kvöld. AFP

Real Madrid náði í kvöld sjö stiga forystu í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu með því að sigra Athletic Bilbao á heimavelli, 1:0.

Karim Benzema  skoraði sigurmarkið á 41. mínútu eftir sendingu frá Luka Modric. Real Madrid er með 36 stig en Atlético Madrid og Real Sociedad eru með 29 stig og Sevilla 28. Bæði Atlético og Sevilla eiga leik til góða á Real Madrid.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert