Einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins

Aron Elís Þrándarson hefur verið frábær fyrir OB á tímabilinu.
Aron Elís Þrándarson hefur verið frábær fyrir OB á tímabilinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn Aron Elís Þrándarson er í liði mánaðarins hjá danska miðlinum Tipsbladet.dk fyrir frammistöðu sína með OB í nóvembermánuði.

Aron Elís, sem er 27 ára gamall, hefur sprungið út í liði OB á tímabilinu og verið algjör lykilmaður á miðsvæðinu en hann hefur komið við sögu í fimmtán leikjum í dönsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.

„Aron hefur verið einn af ósýnilegu hetjunum í dönsku deildinni á tímabilinu,“ segir í umfjöllun Tipsbladet.

„Hann er fyrstur á blað þegar kemur að því að velja liðið og tölfræðin sannar að hann er einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins,“ segir ennfremur í umfjölluninni.

OB er með 19 stig í níunda sæti úrvalsdeildarinnar eftir 17 leiki, sex stigum frá sæti í úrslitariðli deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert