Ramos aftur meiddur

Sergio Ramos hefur verið mikið meiddur undanfarið.
Sergio Ramos hefur verið mikið meiddur undanfarið. AFP

Spænski knattspyrnumaðurinn Sergio Ramos, leikmaður PSG í Frakklandi, er meiddur á nýjan leik.

Ramos er nýbúinn að spila sinn fyrsta leik fyrir PSG en hann hafði verið lengi frá vegna meiðsla. Nú er hann kominn aftur á meiðslalistann en meiðslin eru þó ekki talin vera alvarleg.

Samkvæmt Marca hefur Ramos fullan stuðning liðsfélaga sinna og þjálfara, en stuðningsmenn liðsins eru orðnir þreyttir á fjarveru Spánverjans. Hann hefur nú þegar misst af 22 leikjum á tímabilinu sem verður að teljast ansi mikið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert