Sævar skoraði en FH-ingurinn jafnaði

Sævar Atli Magnússon jafnaði fyrir Lyngby.
Sævar Atli Magnússon jafnaði fyrir Lyngby. mbl.is/Kristinn Magnússon

Køge og Lyngby skildu jöfn, 3:3, í fjörlegum leik á heimavelli fyrrnefnda liðsins í dönsku 1. deildinni í fótbolta í dag.

Sævar Atli Magnússon kom inn á sem varamaður fyrir Lyngby í stöðunni 2:1 fyrir Køge á 68. mínútu. Kristian Riis jafnaði á 78. mínútu og Sævar kom Lyngby í 3:2 á 82. mínútu. Eddi Gomes, fyrrverandi leikmaður FH, jafnaði hinsvegar fyrir Køge í uppbótartíma.

Lyngby, sem Freyr Alexandersson stýrir, er í þriðja sæti deildarinnar með 36 stig, þremur stigum á eftir toppliði Helsingør. Sævar er með tvö mörk í 14 leikjum fyrir Lyngby, en hann kom til félagsins frá Leikni Reykjavík um mitt sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert