Slæmt gengi Barcelona heldur áfram

Leikmenn Betis fagna sigurmarkinu í dag.
Leikmenn Betis fagna sigurmarkinu í dag. AFP

Barcelona tapaði 1:0 gegn Real Betis í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Gengi Barcelona á leiktíðinni hefur verið mjög slæmt og varð engin breyting á því í dag.

Juanmi gerði eina mark leiksins fyrir Betis þegar rúmlega tíu mínútur voru til leiksloka og kom þar með liði sínu upp í þriðja sæti deildarinnar.

Barcelona er í sjöunda sæti eftir 15 umferðir með 23 stig, 13 stigum á eftir erkifjendum sínum í Real Madrid sem sitja á toppnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert