Marokkó í 16-liða úrslitin

Selim Amallah (t.v.) skoraði eitt mark og lagði upp annað …
Selim Amallah (t.v.) skoraði eitt mark og lagði upp annað fyrir Marokkó í dag. AFP

Marokkó tryggði sér í dag sæti í 16-liða úrslitum Afríkumótsins í knattspyrnu þegar liðið lagði Kómorós í C-riðlinum.

Selim Amallah kom Marokkó yfir eftir rétt rúmlega stundarfjórðungs leik þegar liðsfélagar hans gerðu orrahríð að marki Kómorós.

Varnarmenn Komórós komust þrisvar í veg fyrir skot Marokkóbúa en Amallah kom boltanum loks í netið í gegnum þvöguna í fjórðu skottilraun.

Á 83. mínútu fékk Marokkó vítaspyrnu. Á vítapunktinn steig Youssef En-Nesyri en Salim Ben Boina, sem átti stórleik í marki Kómorós, gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna.

Fimm mínútum síðar renndi Amallah svo boltanum til Zakaria Aboukhlal sem lagði boltann í hornið framhjá Ben Boina.

2:0 því lokatölur og Marokkó öruggt með sæti í 16-liða úrslitum keppninnar enda með fullt hús stiga, sex, að loknum tveimur leikjum.

Malaví vann á sama tíma mikilvægan sigur gegn Simbabve í B-riðlinum.

Ishmael Wadi kom Simbabve yfir á 38. mínútu en Gabadinho Mhango jafnaði metin fyrir Malaví skömmu fyrir leikhlé.

Eftir tæplega klukkutíma leik skoraði Mhango svo sigurmark Malaví og tryggði liðinu dýrmæt þrjú stig, en liðið er í þriðja sæti B-riðils, einu stigi á eftir bæði Senegal og Gíneu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert