Átta ára bann fyrir níðsöngva

Úr leik Liverpool og Shrewsbury Town um þarsíðustu helgi.
Úr leik Liverpool og Shrewsbury Town um þarsíðustu helgi. AFP

Forsvarsmenn enska knattspyrnufélagsins Shrewsbury Town hafa tekið ákvörðun um að setja tvo stuðningsmenn félagsins í átta ára bann frá því að fara á leiki þess eftir að þeir gerðust uppvísir að því að syngja níðsöngva um fórnarlömb Hillsborough-slyssins.

Hluti stuðningsmanna Shrewsbury náðist á myndband fyrir leik liðsins gegn Liverpool á Anfield í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar þar sem þeir sungu um slysið á Hillsborough-vellinum í Sheffield sem dró alls 97 stuðningsmenn Liverpool til dauða.

Myndbandið fór í talsvert mikla dreifingu á samfélagsmiðlum og eftir að hafa rannsakað málið er Shrewsbury búið að banna þessa tvo stuðningsmenn. Gætu þeir orðið fleiri þar sem rannsókn félagsins er enn í fullum gangi.

„Sem félag sættum við okkur ekki við og munum ekki þola neina hegðun sem brjóta í bága við siðareglur stuðningsmanna okkar og dregur okkar góða nafn í svaðið,“ sagði í yfirlýsingu frá Shrewsbury.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert