Tvö mörk í tveimur leikjum með Ajax

Kristian Nökkvi Hlynsson hefur komið við sögu í tveimur bikarleikjum …
Kristian Nökkvi Hlynsson hefur komið við sögu í tveimur bikarleikjum með Ajax á tímabilinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kristian Nökkvi Hlynsson var á skotskónum í stórsigri Ajax gegn Excelsior Maassluis í 16-liða úrslitum hollensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í Amsterdam í kvöld.

Leiknum lauk með 9:0-sigri Ajax en Kristian Nökkvi skoraði sjöunda mark Ajax á 64. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður í hálfleik.

Þetta var hans annað mark fyrir aðallið Ajax í sínum öðrum leik fyrir aðalliðið en hann var einnig á skotskónum í bikarsigri gegn Barendrecht í desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert