Skoraði í tólf marka sigri

Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði fyrir Brann í dag.
Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði fyrir Brann í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslendingaliðin Brann og Vålerenga eru komin áfram í 3. umferð norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir stórsigra í dag.

Svava Rós Guðmundsdóttir var á skotskónum og skoraði eitt mark fyrir Brann sem vann 12:0-útisigur gegn Loddefjord en Svava Rós kom inn á sem varamaður hjá Brann í leiknum.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir lék ekki með Brann vegna meiðsla.

Þá lék Ingibjörg Sigurðardóttir fyrri hálfleikinn með Vålerenga sem vann 9:0-útisigur gegn Fart.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert