Dortmund rekur þjálfarann

Marco Rose hefur verið vikið frá störfum hjá Dortmund.
Marco Rose hefur verið vikið frá störfum hjá Dortmund. AFP/Christof Stache

Þýska knattspyrnufélagið Dortmund hefur vikið knattspyrnustjóranum Marco Rose frá störfum. Rose tók við liðinu síðasta sumar.

Rose stýrði Dortmund í 47 leikjum og vann 27 þeirra. Liðið endaði í öðru sæti þýsku 1. deildarinnar, átta stigum á eftir meisturum Bayern München.

Hinn 45 ára gamli Rose kom til Dortmund frá Borussia Mönchengladbach en hann hefur einnig stýrt Leipzig og Salzburg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert