Bale í borg englanna

Gareth Bale er kominn til Los Angeles.
Gareth Bale er kominn til Los Angeles. AFP/Paul Ellis

Velski knattspyrnumaðurinn Gareth Bale hefur gert eins árs samning við bandaríska félagið Los Angeles FC. Hann kemur til félagsins frá Real Madrid.

Bale hafði úr þónokkrum tilboðum að velja en ákvað að lokum að semja við bandaríska félagið úr borg englanna.

Liðið er sem stendur í toppsæti bandarísku atvinnumanna deildarinnar með 30 stig eftir 15 leiki.

Bale lék með Real Madríd í níu tíma­bil og vann Meist­ara­deild Evr­ópu fimm sinn­um með spænska liðinu. Þar á undan var hann hjá Tottenham og Southampton.

Ítalski varnarmaðurinn Giorgio Chiellini samdi við félagið á dögunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert