Mosfellingurinn tæpur vegna meiðsla

Jason Daði Svanþórsson í baráttu við Theódór Elmar Bjarnason hjá …
Jason Daði Svanþórsson í baráttu við Theódór Elmar Bjarnason hjá KR fyrr á tímabilinu. mbl.isÁrni Sæberg

Jason Daði Svanþórsson, einn lykilmanna karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu, er ekki í leikmannahópi liðsins í kvöld en nú stendur yfir leikur ÍA og Breiðabliks í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.

Ástæðan fyrir því er sú að hann er tæpur vegna meiðsla og afréð Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, að taka enga áhættu með Jason Daða.

Mosfellingurinn Jason Daði hefur leikið frábærlega á tímabilinu og var launað með sæti í íslenska A-landsliðshópnum, þar sem hann lék sinn fyrsta landsleik gegn San Marínó fyrr í mánuðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert