Belginn semur til eins árs í Madrid

Axel Witsel í leik með Belgíu gegn Englandi.
Axel Witsel í leik með Belgíu gegn Englandi. AFP

Belgíski knattspyrnumaðurinn Axel Witsel hefur gert eins árs samning með valkost um annað ár við Atlético Madrid á Spáni. 

Witsel kemur til Atlético frá Borussia Dortmund í Þýskalandi þar sem hann gekk í raðir árið 2018. Síðan þá hefur hann verið lykilmaður í liði Dortmund og spilað 105 leiki fyrir félagið. 

Hann hefur einnig verið byrjunarliðsmaður í landsliði Belga og spilað 124 leiki frá því hann gerði frumraun sína árið 2008. 

Hér má sjá tilkynningu frá Atlético:



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert