Skoska knattspyrnukonan Caroline Weir er gengin til liðs við Real Madrid en samningur hennar við enska félagið Manchester City rann út í sumar.
Weir, sem er 27 ára sóknarmiðjumaður, hefur verið ein fremsta landsliðskona Skota undanfarin ár og hefur skorað 14 mörk í 88 landsleikjum.
Hún skoraði 22 mörk í 66 leikjum fyrir City í ensku úrvalsdeildinni en þar áður lék hún með Liverpool, Bristol og Arsenal.