Enska landsliðskonan Nikita Parris er gengin til liðs við Manchester United frá Arsenal og mun leika með þeim í deild þeirra bestu í Englandi næstu tvö árin hið minnsta.
Ásamt því að leika með Arsenal hefur Parris einnig leikið með Everton, Manchester City og Lyon á ferlinum en hún á að baki 67 landsleiki og 15 mörk.
Ljóst er að þessi 28 ára gamli framherji mun verða mikil liðsstyrking fyrir United liðið fyrir komandi átök á Englandi.