Elías tryggði fyrsta sigurinn

Elías Már Ómarsson skoraði fyrir Nimes í kvöld.
Elías Már Ómarsson skoraði fyrir Nimes í kvöld. Ljósmynd/Nimes

Nimes hafði betur gegn Rodez, 1:0, á heimavelli í frönsku B-deildinni í fótbolta í kvöld.

Elías Már Ómarsson var í byrjunarliði Nimes og hann gerði sigurmarkið á 62. mínútu. Aðeins tveimur mínútum síðar var framherjinn tekinn af velli.

Sigurinn er sá fyrsti hjá Nimes á leiktíðinni, en liðið var með eitt stig eftir tvo leiki fyrir leikinn.

Markið er það fyrsta hjá Elíasi á leiktíðinni, í fyrsta byrjunarliðsleiknum. Hann skoraði sex mörk í deildinni á síðustu leiktíð með Nimes.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert