Werner skoraði í endurkomunni

Werner var hjá Leipzig frá 2016-2020 áður en hann fór …
Werner var hjá Leipzig frá 2016-2020 áður en hann fór til Chelsea og sneri aftur á dögunum. AFP/Ronny Hartmann

Timo Werner skoraði mark fyrir RB Leipzig í dag en hann gekk aftur til liðs við þýska félagið á dögunum.

Werner var tilkynntur af Leipzig á mánudaginn eftir tvö slök tímabil hjá Chelsea í ensku deildinni og var í byrjunarliðinu í dag gegn Köln. Það tók hann rúmar 30 mínútur í endurkomu hans í þýsku deildina til að koma með mark eftir skot af löngu færi.

Köln náði svo að jafna leikinn á 40. mínútu eftir mark frá Florian Dietz 1:1.

Dominik Szoboszlai í liði Leipzig fékk svo beint rautt spjald í fyrri hálfleik og spilaði liðið því manni færri allan seinni hálfleik.

Leipzig kemst svo aftur yfir á 56. mínútu eftir mark frá Christopher Nkunku en á 72. mínútu skoraði Josko Gvardiol sjálfsmark og Köln komst í 2:2 og þannig endaði leikurinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert