Þrjú íslensk mörk í öruggum sigri

Jónatan Ingi Jónsson skoraði tvennu.
Jónatan Ingi Jónsson skoraði tvennu. Ljósmynd/Sogndal

Sogndal vann öruggan 4:0-útisigur á Mjøndalen í norsku 1. deildinni í fótbolta í dag og voru Íslendingar áberandi hjá Sogndal.

Jónatan Ingi Jónsson skoraði fyrsta markið á 10. mínútu og annað markið úr víti á 67. mínútu. Valdimar Þór Ingimundarson gulltryggði svo 4:0-sigur með síðasta markinu á 83. mínútu.

Valdimar lék allan leikinn á meðan Jónatan fékk heiðursskiptingu í uppbótartíma. Hörður Ingi Gunnarsson lék allan leikinn með Sogndal.

Liðið er í sjötta sæti með 32 stig og í baráttunni um sæti í efstu deild á næstu leiktíð.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert