Svava og Berglind fóru áfram

Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á í seinni hálfleik.
Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á í seinni hálfleik. Eggert Jóhannesson

Norska liðið brann Brann hafði betur gegn ALG Spor frá Tyrklandi í 1. umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, 1:0, í dag. Leikurinn var í riðli 11, sem leikinn er í Serbíu.

Svava Rós Guðmundsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir byrjuðu á bekknum hjá Brann og kom Svava inn á sem varamaður á 65. mínútu. Berglind sat hinsvegar allan tímann á bekknum.

Með sigrinum tryggði Brann sér úrslitaleik um sæti í 2. umferð keppninnar við Spartak Subotica frá Serbíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert