París SG örugglega í riðlakeppnina

Berglind Björg Þorvaldsdóttir sat allan tímann á varamannabekk franska liðsins.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir sat allan tímann á varamannabekk franska liðsins. Ljósmynd/PSG

Berglind Björg Þorvaldsdóttir og liðsfélagar hennar í franska stórliðinu París SG tryggðu sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.

París SG vann nokkuð þægilegan 2:0-útisigur gegn Häcken í Gautaborg í Svíþjóð þar sem þær Lieke Martens ogKadiditou Diani skoruðu mörk franska liðsins.

Berglind Björg sat allan tímann á varamannabekk franska liðsins sem vann einvígið samanlagt 4:1 og París SG verður því í pottinum þegar dregið verður í riðlakeppnina hinn 3. október í Nyon í Sviss. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert