Wales og Skotland tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitum í umspili um sæti á lokamóti heimsmeistaramóts kvenna í fótbolta eftir sigra í framlengdum leikjum.
Wales hafði betur gegn Bosníu á heimavelli, 1:0. Jessica Fishlock skoraði sigurmarkið í uppbótartíma fyrri hálfleiks framlengingarinnar.
Skotland vann Austurríki með sömu markatölu. Abigail Harrison gerði sigurmark Skotlands á fyrstu mínútu framlengingarinnar.
Skotland mætir Írlandi á heimavelli í úrslitum umspilsins og Wales mætir Sviss á útivelli.