Eyjakonurnar byrjuðu allar og sú besta skoraði

Olga Sevcova skoraði fyrir Lettland í morgun.
Olga Sevcova skoraði fyrir Lettland í morgun. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Þær Olga Sevcova, Sandra Voitane og Viktorija Zaicikova, leikmenn kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu, voru allar í byrjunarliði Lettlands þegar liðið tapaði 2:3 fyrir Færeyjum í vináttulandsleik í morgun.

Olga, besti leikmaður Bestu deildar kvenna samkvæmt M-gjöf Morgunblaðsins, skoraði annað mark Lettlands í síðari hálfleik.

Færeyjar náðu forystunni strax í upphafi leiks en snemma í síðari hálfleik jafnaði Lettland metin og Olga kom liðinu svo yfir eftir tæplega klukkutíma leik.

Færeyjar jöfnuðu metin skömmu síðar og tryggðu sér svo sigurinn með þriðja marki sínu skömmu fyrir leikslok.

Olga og Viktorija spiluðu allan leikinn í liði Lettlands og Sandra var tekin af velli á 74. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert