Emelía æfir með Bayern

Emelía æfir með þýska stórliðinu Bayern München.
Emelía æfir með þýska stórliðinu Bayern München. Ljósmynd/Magnús Arnar Magnússon

Knattspyrnukonan Emelía Óskarsdóttir æfir þessa stundina með þýska stórliðinu Bayern München, en hún er á mála hjá Kristianstad í Svíþjóð.

Sóknarkonan er á reynslu hjá félaginu og æfir með aðalliði þess, en ekki er búist við að Bayern semji við hana sem stendur. Félagið mun þó fylgjast vel með leikmanninum unga.

Emelía er aðeins 16 ára gömul, en hefur vakið athygli fyrir góða spilamennsku með sænska liðinu, sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar.

Hún er uppalin hjá Gróttu en hélt ung erlendis og samdi við Kristianstad, þar sem hún hefur fengið tækifæri í sterkri sænskri deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert