Börsungar vinna og vinna

Pedri fagnar sigurmarki sínu ásamt Ansu Fati.
Pedri fagnar sigurmarki sínu ásamt Ansu Fati. AFP/Pau Barrena

Barcelona vann útisigur á Girona, 1:0, í spænsku A-deild karla í knattspyrnu í dag. 

Einn af lykilmönnum Börsunga, Ousmane Dembélé, meiddist á 26. mínútu og þurfti að fara af velli. Vonarstjarnan Pedri, sem átti að fá hvíld í dag, kom inn í hans stað. 

Er rúmt korter var liðið af síðari hálfleik skoraði Pedri sigurmark Börsunga í sínum 100 leik fyrir félagið. Barcelona er nú með 6 stiga forskot á Real Madrid, sem á þó leik til góða, á toppi deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert