Frá Leeds til Roma

Diego Llorente í leik með Leeds gegn Crystal Palace á …
Diego Llorente í leik með Leeds gegn Crystal Palace á síðasta tímabili. AFP/Ian Kington

Ítalska knattspyrnufélagið Roma hefur fengið spænska varnarmanninn Diego Llorente að láni frá enska félaginu Leeds United út yfirstandandi keppnistímabil.

Llorente gekk til liðs við Leeds haustið 2020 er hann var keyptur á 18 milljónir punda frá Real Sociedad.

Hann hefur verið í aukahlutverki hjá liðinu á tímabilinu og mun nú reyna fyrir sér á Ítalíu undir stjórn Josés Mourinhos.

Roma er með forkaupsrétt á Llorente að tímabilinu loknu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert