Snýr aftur til Liverpool

Natasha Dowie kát með keppnistreyju Liverpool.
Natasha Dowie kát með keppnistreyju Liverpool. Ljósmynd/Liverpool Women

Kvennalið Liverpool hefur fengið enska framherjann Natöshu Dowie að láni frá Reading út yfirstandandi keppnistímabil.

Dowie, sem er 34 ára, var áður á mála hjá Liverpool, á árunum 2012 til 2015, þar sem hún raðaði inn mörkum og varð Englandsmeistari í tvígang.

Liverpool, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, á í harðri fallbaráttu þar sem liðið er í 9. sæti af 12 liðum með aðeins átta stig eftir tíu leiki, einu meira en Reading og Brighton í sætunum fyrir neðan, en Leicester rekur lestina með þrjú stig.

Dowie hefur skorað mörk alls staðar þar sem hún hefur spilað og mun freista þess að hjálpa Liverpool að spyrna sér upp töfluna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert