Sævar skoraði og Alfreð lagði upp (myndskeið)

Sævar Atli Magnússon skoraði þriðja mark Lyngby.
Sævar Atli Magnússon skoraði þriðja mark Lyngby. mbl.is/Kristinn Magnússon

Danska liðið Lyngby mætti Elfsborg á knattspyrnumótinu Atlantic Cup í Algarve í Portúgal í gær. Íslendingarnir í Lyngby voru áberandi.

Tochi Chukwuani skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Lyngby á áttundu mínútu eftir undirbúning hjá Alfreð Finnbogasyni.

Sævar Atli Magnússon leysti Alfreð af hólmi á 60. mínútu og 20 mínútum síðar skoraði hann þriðja mark Lyngby og kom liðinu í 3:2.

Því miður fyrir Lyngby skoraði Elfsborg tvö mörk í lokin og vann 4:3-sigur. Kolbeinn Birgir Finnsson lék allan leikinn með Lyngby, sem leikur undir stjórn Freys Alexanderssonar.

Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert