Rúnar stóð vaktina í tapi

Rúnar Alex Rúnarsson lék allan leikinn í dag.
Rúnar Alex Rúnarsson lék allan leikinn í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rúnar Alex Rúnarsson stóð allan leikinn í marki Alanyaspor í tapi á útivelli gegn Ankaragücü, 2:0, í tyrknesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Rúnar hefur verið fastamaður í liði Alanyaspor á tímabilinu en hann kom engum vörnum við í dag. Það voru þeir Ali Sowe og Milson sem skoruðu mörk Ankaragücü í sitt hvorum hálfleiknum. 

Alanyaspor er í 11. sæti deildarinnar með 28 stig eftir 24 leiki, fimm stigum frá fallsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert