Aron og félagar á toppnum eftir þægilegan sigur

Aron Einar Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu.
Aron Einar Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Al-Arabi vann sannfærandi sigur á Al-Sailiya í efstu deild í knattspyrnu í Katar í kvöld.

Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn í liði Al-Arabi sem lenti undir í leiknum en sneri taflinu við og vann að lokum öruggan sigur.

Al-Arabi er á toppi deildarinnar með 37 stig eftir 17 leiki, stigi meira en Al-Duhail, sem á þó tvo leiki til góða og hefur því góðan möguleika á að ná toppsætinu aftur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert