Bayern leiðir eftir fyrri leikinn

Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í vörn Bayern í …
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í vörn Bayern í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þýska liðið Bayern München lagði enska liðið Arsenal, 1:0, á Allianz-Arena í München í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvennaknattspyrnunni í kvöld.

Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í vörn Bayern en það var Lea Schüller sem skoraði sigurmarkið í fyrri hálfleik.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru í leikmannahópi Bayern í leiknum en sátu allan leikinn á varamannabekknum.

Liðin mætast öðru sinni í seinni leiknum í Lundúnum þann 29. mars næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert