Haaland dregur sig úr norska hópnum

Erling Haaland skorar eitt af þremur mörkum sínum fyrir Man. …
Erling Haaland skorar eitt af þremur mörkum sínum fyrir Man. City gegn Burnley um helgina. AFP/Oli Scarff

Erling Haaland, sóknarmaður Manchester City, hefur dregið sig úr norska landsliðshópnum fyrir fyrstu tvo leiki liðsins í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu í vikunni.

Haaland meiddist á nára í 6:0-sigri á Burnley í átta liða úrslitum ensku bikarkeppninnar um liðna helgi, þar sem hann skoraði þrennu.

Því getur Haaland ekki tekið þátt í leikjum Noregs gegn Spáni og Georgíu í A-riðli undankeppninnar.

„Erling tók því þunglega þegar hann áttaði sig á því að hann gæti ekki barist fyrir liðið.

Sem betur er gnægð sjálfstrausts, hæfileika og samheldni innan þessa hóps svo honum sé unnt að vinna sér inn stig í næstu leikjum,“ sagði Ståle Solbakken, þjálfari norska landsliðsins, í samtali við heimasíðu norska knattspyrnusambandsins.

Haaland hefur skorað 21 mark í 23 A-landsleikjum fyrir Noreg og því er mikið skarð fyrir skildi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert