María missir af HM í sumar

María Þórisdóttir í leik með norska landsliðinu.
María Þórisdóttir í leik með norska landsliðinu. AFP/Jean-Francois Monier

Hin hálfíslenska María Þórisdóttir, leikmaður Manchester United og norska landsliðsins í knattspyrnu, missir af heimsmeistaramótinu í sumar vegna meiðsla á fæti.

Manchester United tilkynnti í dag að hún myndi ekki leika meira með félaginu á yfirstandandi tímabili í ensku úrvalsdeildinni.

María er 29 ára gömul og leikur sem varnarmaður, en hún hefur leikið með norska A-landsliðinu frá árinu 2015 og spilað 66 landsleiki. Hún er dóttir Þóris Hergeirssonar frá Selfossi, hins sigursæla þjálfara norska kvennalandsliðsins í handknattleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert