Barcelona skoraði fimm

Asisat Oshoala fagnar marki sínu í kvöld.
Asisat Oshoala fagnar marki sínu í kvöld. AFPLluis Gene

Barcelona tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta með sannfærandi 5:1-heimasigri á Roma í seinni leik liðanna í átta liða úrslitunum.

Spænsku meistararnir unnu fyrri leikinn á útivelli 1:0 og fara því áfram í 6:1-samanlagt.

Barcelona byrjaði með látum og sænska landsliðskonan Fridolina Rolfö skoraði fyrsta markið á 11. mínútu. Mapi León bætti við öðru marki á 33. mínútu og Rolfö var aftur á ferðinni í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Asisat Oshoala bætti við fjórða marki Barcelona í upphafi seinni hálfleiks og Patricia Guijarro því fimmta á 53. mínútu. Annamaria Serturini minnkaði muninn fyrir Roma á 58. mínútu og þar við sat.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert