Barcelona með níu og hálfan fingur á titlinum

Robert Lewandowski fagnar öðru marka sinna í kvöld.
Robert Lewandowski fagnar öðru marka sinna í kvöld. AFP/M. Ramon

Barcelona lagði Elche á útivelli, 4:0, í spænsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Þeir Ansu Fati, Ferran Torres og Robert Lewandowski skorðu mörk Barcelona en sá síðastnefndi skoraði tvívegis.

Real Madrid leikur á morgun gegn Real Valladolid og getur minnkað forskot Barcelona á toppnum niður í tólf stig. Ellefu umferðum er ólokið og því þarf Real Madrid kraftaverk til að Barcelona verði af spænska meistaratitlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert