Enska knattspyrnufélagið Leicester City hefur vikið Willie Kirk frá störfum sem knattspyrnustjóri kvennaliðsins eftir að upp komst um ástarsamband hans við töluvert yngri leikmann liðsins.
The Guardian greindi frá því að Kirk, sem er 45 ára, hafi átt í ástarsambandi við leikmanninn í nokkurn tíma og var hann af þeim sökum settur til hliðar þegar upp komst um það.
Kirk hefur nú verið látinn taka pokann sinn eftir að innanbúðar rannsókn Leicester lauk.
Aðeins nokkar vikur eru síðan Jonathan Morgan fékk reisupassann hjá kvennaliði Sheffield United sem knattspyrnustjóri fyrir að eiga í ástarsambandi við 17 ára leikmann.