Sádí-Arabía sækist eftir því að halda heimsmeistaramótið í fótbolta 2034. Óhætt er að segja að áætlanir Sáda fyrir mótið séu háleitar.
Sádí-Arabía eru eina þjóðin sem sótt hefur um að halda mótið en fresturinn rann út í október á síðasta ári. Þrátt fyrir það er ekki búið að staðfesta að HM fari fram í landinu en miðað við kynningarmyndband sem gefið var út í gær stendur til að halda flottasta heimsmeistaramót sögunnar.
Saudi2034bid.com birtir áætlun landsins um framkvæmd mótsins en þar kemur fram að leikið verði í fimm borgum á fimmtán völlum. Þar af eru fjórir vellir þegar tilbúnir, þrír eru í byggingarferli og átta nýir leikvangar verði byggðir fyrir keppnina.
Magnað kynningarmyndband Sádana má sjá hér að neðan.
Imagine the future with us in 2034! 💚
— Saudi Arabia FIFA World Cup™️ 2034 bid (@Saudi2034bid) July 31, 2024
The #Saudi2034bid invites the world to join us on our journey of remarkable transformation as the home of global sport 🇸🇦 ⚽
Discover more: https://t.co/x8yAKWCwGE#GrowingTogether pic.twitter.com/Z90GfWK2Yg